bögg, bögg, bögg
Hvað er svona almennt óþolandi? Var hérna áðan að bíða eftir að komast í tölvuna og var að pirra mig á ýmsu í kringum mig, enda illa sofin eftir næturbrölt í forsetanum. Það sem pirraði mig var:
- Lykkjufall. Það er óþolandi þegar það kemur strax lykkjufall á sokkabuxurnar. Fjárfesti í nýjum þykkum sokkabuxum (svona fyrir sumarið..?!) í vikunni því að ég var búin að eiga gömlu svo ógeðslega lengi! Nei, kemur þá ekki bara lykkjufall á nýju.
- FERMINGARMYNDIN MÍN. Ó mæ, ómæ. Af hverju er hún í ramma uppi við? Reyndar inni í tölvuherbergi og snýr að glugganum, hehe. Munnurinn á mér er svona 1/4 af andlitinu sem ljómar í þessu líka "gleði"brosi..... og svo ég tali nú ekki um greiðsluna.
5 ummæli:
Þú og þessi glataða færsla!!!!
(vildi bara koma með þetta komment sjálf svona til að klára þennan djók...)
Vá hvað ég er sammála með lykkjufall á sokkabuxum! Annars er ekkert að bögga mig í dag, kannski á morgun ;)
lykkjufall á peysu er ömurlegt
lykkjufall á peysu??
hahahahaha:D ææ
Skrifa ummæli