17.3.06

Hún Silja er dugleg að birta stjörnuspárnar sýnar á blogginu sínu enda eru þær oftar en ekki fáránlega lýsandi fyrir hana og hennar líf. Stjörnuspáin mín í dag hljóðar svo:
Krabbi
Það tók þúsundir ára af uppfinningum og þróun að ná þeim áfanga að geta skrúfað frá krana og farið í heitt bað þegar mann lystir. Þú ert heppinn að geta haldið upp á það og alls kyns kraftaverk sem maðurinn hefur gert.
Nohh! Til hamingju æðri máttarvöld! Ég ætlaði einmitt í bað í kvöld! Þetta er roooosalegt.
Fór með MATARklúbbnum mínum að sjá leikritið Hungur í gær. Þetta var bara nokkuð gott stykki, mátulega langt og laust við þessa tilgerð sem mér finnst oftast einkenna leikhús. Pínu svona sjokkerandi samt. Til að setja punktinn yfir i-ið, rúsínuna í pylsuendan og allt það fannst okkur viðeigandi að fara út að borða eftir á. Gott kvöld í góðum félagsskap -regnbogi, rós, blikkkall- hohohohohohohoh

2 ummæli:

Katrin sagði...

Takk fyrir síðast, alveg frábært kvöld! kveðja, Marilyn Monroe í þykkri þoku... blikkkall-he-he-he

she sagði...

ÚLALA.... á bara að skella sér í bað í kvöld (tvöfaldur blikk-kall)

En takk fyrir síðast, mjög skemmtilegt kvöld