2.10.02

Nú er alveg liðin heil vika síðan ég bloggaði síðast en mér fannst samt eins og það væri mánudagur í dag og fannst alltaf jafn fyndið að það væri fimmtudagur á morgun :-D Ekki skrítið að ég væri rugluð því ég var enn þunn á mánudaginn eftir draugaferðina á laugardaginn og svo var frí hjá mér í gær (var næstum enn þunn þá)! Ekkert smá vel heppnuð ferð á laugardaginn og enn betur heppnað eftirpartý hjá Sterí (ekki beru..) og þó svo að sumir væru mjög ölvaðir var alltaf einhver sem var enn verri hahaha eins og til dæmis Elías sem ætlaði að labba til Reykjavíkur og villtist svo í götunni minni og fór bara að hræða litla krakka í barnaafmæli híhíhí :-D Svo heyrði ég brandara um fólk sem fékk sér kallú(ll)a og einhver heit virtust vera rofin, en það var víst bara til að sanna samkynhneigð annars aðilans... (þetta voru samt strákur og stelpa..veit ekki alveg hvað gellan var að meina) Kannski er einhvern tíma hægt að kíkja á myndir úr ferðinni á heimasíðunni okkar.

Engin ummæli: